Hlýnandi veður á sumardaginn fyrsta

Kort/Veðurstofa Íslands

„Suðvestangola eða -kaldi í dag. Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, annars él á víð og dreif.

Ákveðin vestlæg átt á morgun og útlit fyrir sólríkan dag á Suðausturlandi, en dálítil él á norðausturhorninu. Síðan er búist við sunnanátt með smá vætu og hægt hlýnandi veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Vestlæg átt 3-10 m/s. Víða léttskýjað á S- og A-landi, en dálítil él N-lands. Hiti um frostmark fyrir norðan, en upp í 7 stig syðra.

Á miðvikudag:
Suðvestan 3-8, skýjað og lítils háttar væta, en þurrt SA-til á landinu. Hiti 2 til 7 stig.

Á fimmtudag (sumardaginn fyrsta) og föstudag:
Suðlæg átt og dálítil rigning með köflum, heldur hlýnandi.

Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og milt veður. Léttskýjað eystra, annars skýjað en úrkomulítið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert