Átta sóttu um embætti lögreglustjóra

Átta umsóknir bárust um embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra sem auglýst var laust til umsóknar 27. mars síðastliðinn. Gunn­ar Örn Jóns­son, sem var lög­reglu­stjóri á Norður­landi vestra, hefur tekið við embætti lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi.

Umsækjendur um embættið eru:

Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir – aðstoðarsaksóknari

Birgir Jónasson – löglærður fulltrúi

Helgi Jensson – aðstoðarsaksóknari

Hildur Sunna Pálmadóttir – lögfræðingur

Karl Óttar Pétursson - lögfræðingur

Magnús Barðdal – útibússtjóri

Sigurður Hólmar Kristjánsson, settur lögreglustjóri

Stefán Ólafsson – lögfræðingur

Hæfnisnefnd sem hefur ráðgefandi hlutverk í ráðningarferlinu mun nú fara yfir umsóknirnar að því er fram kemur á vef dómsmálaráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert