Verðmunur mestur fyrir jepplinga

Margir þurfa á þjónustu dekkjaverkstæða að halda þessi dægrin.
Margir þurfa á þjónustu dekkjaverkstæða að halda þessi dægrin. mbl.is/Árni Sæberg

Allt að 159% munur er á hæsta og lægsta verði sem greitt er fyrir dekkjaskipti, umfelganir og janfvægisstillingu. Mestur hlutfallslegur munur á slíkri þjónustu er fyrir bíla á 16" dekkjum með ál- og stálfelgum eða 159%.

Hæst var verðið hjá Réttingaverkstæði Sveins, 15.500 krónur, en lægst hjá Aðalbílum í Reykjavík, 5.990 krónur.

Hlutfallslegur verðmunur fyrir sömu þjónustu í flokki smábíla (14" dekk, ál- og stálfelgur) var 109%. Hlutfallslegur verðmunur fyrir sömu þjónustu í flokki jeppa (18" dekk, ál- og stálfelgur) var 143%. 

Þetta eru niðurstöður verðsamanburðar ASÍ, sem gerður var 20. apríl. Eftirfarandi þjónustuaðilar vildu ekki upplýsa verðlagseftirlitið um verð á þjónustunni: Hjólbarðaþjónustan Framnesvegi Reykjanesbæ, Höldur bílaverkstæði Akureyri, Hjólbarðaverkstæði Magnúsar Selfossi, Hjólbarðaverkstæði Óskars Sauðárkróki og Dekkjahöllin og B.V.A. Egilstöðum.

Aðalbílar í Reykjavík ódýrastir nema í jeppaflokki

Lægsta verðið fyrir dekkjaskipti, umfelgun og jafnvægisstillingu fyrir smábíla, minni meðalbíla, meðalbíla og jepplinga á ál- og stálfelgum var hjá Aðalbílum Reykjavík, 5.990 kr. Næstlægsta verðið fyrir sömu tegundir af bifreiðum var hjá Bifreiðaverkstæðinu Stormi Patreksfirði, 7.200 kr.

Bifreiðaverkstæði S.B. á Ísafirði var með þriðja lægsta verðið fyrir á jepplinga (ál- og stálfelgur), 8.900 kr. Bifreiðaverkstæðið Stormur var með lægsta verðið á þjónustunni fyrir jeppa (ál- og stálfelgur), 8.200 kr., en næstlægsta verðið var hjá Aðalbílum, 8.990 kr.

Réttingaverkstæði Sveins Neskaupstað var með hæsta verðið fyrir dekkjaskipti, umfelgun og jafnvægisstillingu fyrir smábíl (14" ál og stál), 12.500 kr. Næsthæsta verðið fyrir sömu gerð af bíl á álfelgum var 12.000 kr. hjá Vatnajökull Travel á Höfn í Hornafirði en fyrir smábíl á 14" stálfelgum Arctic Trucks, 11.500 kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert