Rússnesk stjórnvöld æfðu aðflug á Íslandi

Aeroflot-vél af gerðinni Ilyushin Il-96-300.
Aeroflot-vél af gerðinni Ilyushin Il-96-300. Ljósmynd/Kirill Naumenko

Flugvél á vegum rússneskra stjórnvalda tók aðflug við Keflavíkurflugvöll bæði í fyrradag og í gær en flugvélin hafði fengið heimild til aðflugsæfinga á Íslandi. Hún lenti þó ekki á vellinum.

Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, við mbl.is.

Nokkrar vélar af þessari gerð, Ilyushin Il-96-300, eru í flota stjórnvalda í Rússlandi. Flytja þær rússneska ráðamenn á milli landa í opinberum erindrekstri þeirra. 

Heimildir mbl.is herma að aðflugsæfingarnar hafi verið liður í undirbúningi komu utanríkisráðherra Rússlands, Sergeis Lavrovs, til landsins.

Lavrov hefur áður lýst áhuga sínum á að mæta á ráðherra­fund norður­skauts­ráðsins sem hald­inn verður í Reykja­vík 19. og 20. maí.

Rússneskar vélar af gerðinni Ilyushin Il-76 fljúga yfir Kreml í …
Rússneskar vélar af gerðinni Ilyushin Il-76 fljúga yfir Kreml í æfingu sem haldin var í dag. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert