Sinubruninn sést vel á gervitunglamyndum

Gróðurlendið sem brann í Heiðmörk 4.-5. maí sést hér á …
Gróðurlendið sem brann í Heiðmörk 4.-5. maí sést hér á gervitunglamynd sem tekin var í dag. Ljósmynd/Facebook

Gróðurlendið sem brann í sinueldunum í Heiðmörk í vikunni sést vel á gervitunglamyndum USGS og NASA sem teknar voru fyrr í dag. Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands birti myndina á Facebook fyrr í kvöld. 

Á myndinni má sjá rauðbrúnan blett sem sýnir þá 54 hektara sem brunnu í Heiðmörk. 

Enn er eldhætta á svæðinu en ekki hefur rignt á sunnan- og vestanverðu landinu síðustu daga. Engin rigning er í kortunum fyrr en á fimmtudaginn.

Heiðmörk opnaði aftur á fimmtudag en reyk­ing­ar og hvers kyns meðferð elds eða eld­færa er bönnuð í Heiðmörk á meðan veður er jafn þurrt og nú er. Gest­ir friðlands­ins eru hvatt­ir til að hugsa vel um nátt­úr­una.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert