Kvikuflæði hefur vaxið

Eldgos í Geldingadölum.
Eldgos í Geldingadölum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýjustu mælingar gefa til kynna að á síðustu dögum hafi kvikuflæðið í eldgosinu á Reykjanesskaga vaxið og sé nú nærri 13 rúmmetrum á sekúndu.

Vísindaráð almannavarna fundaði í dag um stöðu eldgossins við Fagradalsfjall. Í fréttatilkynningu sem send var út í dag segir að flatarmál hraunsins sé nú 1,78 ferkílómetrar og að rúmmál hraunsins sem runnið hefur mælist 30,7 milljónir rúmmetrar. Þar segir einnig að með auknu kvikuflæði verði að gera ráð fyrir auknu útstreymi eldfjallagasa.

Kvikustrókar ná 100 til 300 metra hæð

Mikil kvikustrókavirkni hefur verið í eldgosinu á undanförnum dögum. Nú þeytast kvikustrókar 100 til 300 metra upp úr gígnum og rignir niður gjalli og hraunslettum umhverfis gíginn.

„Þeim mun hærri sem kvikustrókarnir eru þeim mun lengra berast þessi efni. Ef kvikustrókar ná 300 metra hæð og vindur er 13-15 metrar á sekúndu má búast við hraunbombum (molar/slettur sem eru meira en 6 sm í þvermál) í allt að 600 metra fjarlægð frá gígnum. Glóandi slettur kveikja í mosa og gróðri sem þau lenda á og í reyknum er mikið af kolmónoxíði (CO) sem er eitrað fólki. Stundum mælist það mikið af kolmónoxíði í reyknum af gróðurbrunanum að slökkviliðsmenn myndu nota reykköfunartæki ef þeir ætluðu inn á svæðið,“ segir í fréttatilkynningu.

Skjálftavirkni á Reykjanesskaga verið fremur lítil að undanförnu. Segir í tilkynningunni að skjálftavirkni yfir kvikuganginum hafi að mestu verið bundin við svæði í kringum Litla-Hrút. Þá hefur nokkur skjálftavirkni verið vestur af Kleifarvatni og við Sundhnúka og Þorbjörn og er sú virkni talin stafa af spennuhreyfingum í jarðskorpunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert