Datt á rafmagnshlaupahjóli og viðbeinsbrotnaði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna manns sem hafði dottið af rafmagnshlaupahjóli. Talið er að maðurinn sé viðbeinsbrotinn. 

Þá stöðvaði lögregla bifreið í Kópavogi, en þrír voru í bifreiðinni. Við frekari skoðun kom í ljós að þeir voru allir án skilríkja og dvalarleyfis. Voru þeir allir vistaðir í fangaklefa á meðan verið er að rannsaka málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert