Munaði aðeins þrettán atkvæðum á 2. og 3. sæti

Litlu munaði á Jóni Gunnarssyni, ritara og þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og …
Litlu munaði á Jóni Gunnarssyni, ritara og þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Bryndísi Haraldsdóttur þingmanni, í annað sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Samsett mynd

Einungis munaði þrettán atkvæðum á öðru sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi hvers úrslit urðu ljós fyrr í kvöld. 

Eins og greint hefur verið frá hafnaði Jón Gunnarsson, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í öðru sæti. Hlaut hann 1.134 atkvæði í 1.-2. sæti. 

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig bauð sig fram í 2. sæti listans hlaut til þess 1.121 atkvæði. 

Einnig var mjótt á munum á milli Óla Björns Kárasonar sem hafnaði í fjórða sæti prófkjörsins og Arnars Þórs Jónssonar sem hafnaði í 5. sæti. 38 atkvæða munur var á milli þeirra í 1.-4. sæti.

Hægt er að sjá heildarniðurstöðu sex efstu í prófkjörinu í meðfylgjandi skjali.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert