Flýgur lágflug yfir borginni síðdegis í dag

Play notar þotur af gerðinni Airbus. Ein slík mun fljúga …
Play notar þotur af gerðinni Airbus. Ein slík mun fljúga fyrir höfuðborgarsvæðið síðdegis í dag. Ljósmynd/Play

Fyrsta flugvél hins nýstofnaða flugfélags Play mun fljúga lágflug yfir höfuðborgarsvæðinu síðdegis í dag, áður en hún lendir í fyrsta sinn á Keflavíkurflugvelli, tilbúin til notkunar. 

Íbúum höfuðborgarsvæðisins mun því gefast kostur á því milli klukkan 15 og 16 í dag að berja vél Play augum í jómfrúrferð sinni til Íslands. 

Birgir Jónsson, forstjóri Play, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. „Hún lætur eitthvað sjá sig hérna yfir bænum núna síðdegis áður en hún lendir,“ segir Birgir. 

Vélin er lögð af stað frá Texas í Bandaríkjunum þar sem verið var að mála hana í einkennislitum Play. Birgir segir að vélin hafði þurft að stoppa í Bangor-borg í Maine til þess að taka eldsneyti, áður en hún hóf sig til lofts að nýju á leið sinni til Keflavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert