Sjálfstæðisflokkurinn með 27% fylgi

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins sem mælist stærsti flokkur landsins.
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins sem mælist stærsti flokkur landsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærsti stjórnmálaflokkur Íslands með 27% fylgi samkvæmt nýjustu skoðanakönnun MMR. Fylgi flokksins er tveimur prósentustigum hærra nú en í síðustu könnun MMR. 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 53,7% og jókst um rúmlega þrjú prósentustig frá síðustu könnun. 

Þó minnkar stuðningur við Framsókn um tæplega fjögur prósentustig á milli mælinga og stendur nú í 8,8% fylgi. Fylgi Vinstri-grænna eykst um rúmlega eitt prósentusig og mælist 12,4%. 

Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um 3 prósentustig. Katrín Jakobsdóttir er …
Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um 3 prósentustig. Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylgi Pírata stendur í stað á milli mælinga og mælist nú 13,1%. Fylgi Viðreisnar minnkaði um rúmlega þrjú prósentustig og mælist 7,8%. 

Flokkur fólksins mælist með 5,5% fylgi og hækkar um tæplega þrjú prósentustig.

Miðflokkurinn mælist með 7,3% fylgi og Samfylkingin með 11,2% fylgi. 

Könnunin var framkvæmd 4.-14. júní og var heildarfjöldi svarenda 973 manns, 18 ára og eldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert