Hæstiréttur hafnar málskotsbeiðni Björns Inga

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Björns Inga Hrafnssonar fjölmiðlamanns sem dæmdur var til að greiða 80 milljóna króna skuld til þrotabús Pressunnar ehf. Dómur um það féll í Landsrétti fyrr á þessu ári og segir Hæstiréttur að ekki fáist séð að sá dómur sé rangur. 

Héraðsdóm­ur­ Vesturlands hafði áður fall­ist á kröfu þrota­bús­ins um rift­ingu veðsetn­inga Press­unn­ar ehf. á eign­um fé­lags­ins með lána­samn­ingi sem gerður var á milli Press­unn­ar og Björns Inga, sem þá var stjórn­ar­formaður Press­unn­ar, í júní árið 2017. 

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem tók yfir miðla Press­unn­ar skömmu áður en fé­lagið fór í gjaldþrot, tók einnig yfir skuld Press­unn­ar við Björn Inga á grund­velli þessa lána­samn­ings, en þess­ari yf­ir­töku skuld­anna hef­ur einnig verið rift og því þarf Björn Ingi að greiða þrota­bú­inu 80 millj­ón­ir króna.

Lög­menn þrota­bús­ins færðu rök fyr­ir því fyr­ir héraðsdómi á sín­um tíma að ekk­ert í bók­haldi Press­unn­ar benti til þess að Björn Ingi hefði nokkru sinni lánað Press­unni þess­ar 80 millj­ón­ir króna, eins og hann seg­ist hafa gert í nokkr­um greiðslum. 

Þrota­búið sakaði Björn Inga um að hafa gengið frá veðsetn­ing­unni til að tryggja hags­muni sína á kostnað annarra kröfu­hafa áður en Press­an færi í þrot, en með þess­ari veðsetn­ingu öðlaðist Björn Ingi alls­herj­ar­veð í Press­unni og fjöl­miðlum út­gáfu­fé­lags­ins, Eyj­unni, Bleikt, 433 og Press­unni. 

Dóm­ur Lands­rétt­ar kveður á um rift­ingu eft­ir­far­andi veðsetn­inga:

  • Alls­herj­ar­veð í Press­unni ehf.
  • Fir­ma­nafnið og vörumerkið Eyj­an, vef­miðill­inn eyj­an.is og lén síðunn­ar

  • Fir­ma­nafnið og vörumerkið Bleikt, vef­miðill­inn bleikt.is og lén síðunn­ar

  • Fir­ma­nafnið og vörumerkið 433, vef­miðill­inn 433.is og lén síðunn­ar

  • Fir­ma­nafnið og vörumerkið Press­an og út­gáfu­rétt­ur Press­unn­ar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert