Velferðarnefnd fundar um stöðu faraldursins

Fjarfundur hjá velferðarnefnd á nefndarsviði Alþingis.
Fjarfundur hjá velferðarnefnd á nefndarsviði Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Velferðanefnd Alþingis kemur saman í dag á fjarfundi til þess að ræða stöðuna vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Frá þessu er greint á vef Alþingis.

Gestir fundarins verða Alma Möller landlæknir og Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, Már Kristinsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræðum, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.

Fátítt er að nefndir Alþingis komi saman utan starfsíma þingsins sem hefur nú verið slitið fyrir alþingiskosningar í haust. 

Boðað var til fundarins að beiðni minnihluta nefndarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert