Átak í hreinsun á strandlengju Íslands

Ráðherra ásamt fulltrúum Bláa Hersins, Landverndar, SEEDS, Umhverfisstofnunnar og Veraldarvina. …
Ráðherra ásamt fulltrúum Bláa Hersins, Landverndar, SEEDS, Umhverfisstofnunnar og Veraldarvina. Á myndina vantar fulltrúa Ocean Missions. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Í dag undirritaði umhverfis- og auðlindaráðherra samstarfsyfirlýsingu umhverfisráðuneytið, Bláa Hersins, Landverndar, Ocean MissionsSEEDS, Umhverfisstofnunar og Veraldarvina um hreinsun strandlengju Íslands.

Um er að ræða fimm ára átak í hreinsun strandlengju Íslands af plasti og öðrum úrgangi. Átakið byggir á aðgerð 17 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins, og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um plast í hafi og tryggja að hreinsuðum ströndum verði haldið við eins og kostur er.

Áætlað er að heildarkostnaður verkefnisins verði 150 milljónir.

Munu birta upplýsingar um árangur

Í verkefninu felst að meta ástand strandlengju landsins með tilliti til plastmengunar og að skipuleggja, undirbúa og framkvæma strandhreinsanir sem og að flytja þann úrgang sem safnast í hverri hreinsun til endurvinnslu.

Umhverfisstofnun mun sjá um að birta upplýsingar um stöðu og árangur átaksins með aðgengilegum hætti og kynna fyrir almenningi og félagasamtökin munu vinna fræðsluefni sem hluta af vitundarvakningu um að draga úr myndun úrgangs og uppsöfnun hans í náttúrunni. Meginhluti fjármagnsins mun renna í strandhreinsunina sjálfa á vegum félagasamtakanna.  

„Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þess að draga úr plastmengun á ströndum og í hafi, en þar hefur plast safnast upp í miklu magni og ógnar lífríki víða. Á sama tíma þurfum við að draga úr myndun úrgangs, endurvinna meira af plasti og koma í veg fyrir að það berist út í náttúruna,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert