Loka veginum frá Kirkjubæjarklaustri

Varasamt er að vera á ferðinni um þessar mundir vegna …
Varasamt er að vera á ferðinni um þessar mundir vegna veðursins. Myndin er af bænum Fossi á Síðu, skammt austan við Kirkjubæjarklaustur mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vegagerðin hefur lokað hringveginum frá Kirkjubæjarklaustri að Höfn í Hornafirði vegna óveðursins í dag.

Fleiri vegum hefur verið lokað vegna færðarinnar; veginum um Klettsháls á Vestfjörðum hefur verið lokað en stefnt er að opnun um áttaleytið í kvöld og þá hefur Vegagerðin gefið út að ekkert ferðaveður sé í kringum Vík, á Mýrdalssandi og undir Eyjafjöllum.

Ekkert ferðaveður er heldur á hálendinu og vegum hefur verið lokað vegna færðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert