Heilsugæslan mun annast ADHD greiningar fullorðinna

Heilsugæslan mun annast þjónustuna í samvinnu við heilsugæslu og geðheilsuteymi …
Heilsugæslan mun annast þjónustuna í samvinnu við heilsugæslu og geðheilsuteymi í heilbrigðisumdæmum um allt land. mbl.is/Árni Sæberg

Heilbrigðisráðherra hefur falið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að annast á landsvísu greiningar ADHD hjá fullorðnum. Heilsugæslan mun annast þjónustuna í samvinnu við heilsugæslu og geðheilsuteymi í heilbrigðisumdæmum um allt land.

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu kemur fram að þess sé vænst að með breyttu skipulagi takist að stytta bið eftir greiningum og stuðla að samfelldri þjónustu við einstaklinga með ADHD á viðeigandi þjónustustigi.

ADHD greiningarteymi fyrir fullorðna verður áfram starfrækt á Landspítala en þjónusta þess verður bundin við einstaklinga með fjölþættan vanda sem þurfa á sérhæfðri heilbrigðisþjónustu í samræmi við skilgreiningu þriðja stigs heilbrigðisþjónustu í lögum.

Breyting komi í kjölfar ýtarlegrar greiningarvinnu

Ákvörðun um breytt fyrirkomulag ADHD greininga og meðferðar fullorðinna byggist á ýtarlegri greiningarvinnu í samstarfi ráðuneytisins, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Landspítala og samráði við ADHD samtökin

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist í tilkynningunni leggja áherslu á að með breytingunni sé unnið í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu um að veita fólki þjónustu á réttu þjónustustigi og íþyngja ekki efsta stigi þjónustukeðjunnar með verkefnum sem betur eiga heima á fyrsta eða öðru þjónustustigi heilbrigðisþjónustunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert