Lögregla telur að kveikt hafi verið í bíl

Slökkviliðið að störfum í nótt.
Slökkviliðið að störfum í nótt. Ljósmynd/Hjalti Þór Davíðsson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til rétt fyrir klukkan 2 í morgun í hverfi 108 vegna bílbruna. Lögregla, sem nú hefur málið til rannsóknar, telur að kveikt hafi verið í bílnum. Að slökkvistarfi loknu var bíllinn fjarlægður af vettvangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu til fjölmiðla.

Ljósmynd/Hjalti Þór Davíðsson

Af myndum, sem sendar voru mbl.is, að dæma virðist bíllinn gjörónýtur að innan. Heimildir herma að bíllinn hafi staðið á gatnamótum Háagerðis og Sogavegar.

Í tilkynningu lögreglu segir einnig að maður hafi verið handtekinn í Kópavogi klukkan 04 í morgun, grunaður um hylmingu. Hann gistir nú í fangageymslu vegna rannsóknarhagsmuna.

Þar að auki voru tveir ökumenn stöðvaðir í gærkvöld grunaðir um akstur undir áhrifum, annar klukkan 21:30 í Grafarvogi en hinn skömmu síðar á Reykjanesbraut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert