Árekstur við Suðurgötu

Ekki er vitað um líðan á þeim slasaða.
Ekki er vitað um líðan á þeim slasaða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveggja bíla árekstur varð við gatnamót Suðurgötu og Hjarðarhaga um hálfsjöleytið. Einn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. 

Í samtali við mbl.is segir starfsmaður hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu ólíklegt að sá sem var fluttur á sjúkrahús sé mikið slasaður þar sem útkallið var ekki forgangsútkall.

Ekki er vitað um líðan hins slasaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert