Ákært fyrir peningaþvætti og bókhaldssvik

Alls eru fimm ákærðir.
Alls eru fimm ákærðir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Héraðssaksóknari hefur ákært framkvæmdastjóra og stjórnarmenn verktakafyrirtækjanna Brotafls ehf. og Kraftbindinga fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum og peningaþvætti. Alls eru fimm ákærðir. 

Framkvæmdastjórar Brotafls eru ákærðir fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum, rangfært bókhald félagsins með því að færa tilhæfulausa sölureikninga í bókhald félagsins og fyrir peningaþvætti sem aflaði þeim að minnsta kosti 64 milljóna í ávinning í þágu rekstrar eða í eigin þágu.

Stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Kraftbindinga eru ákærður fyrir það sama og framkvæmdastjórar Brotafls en í ákærunni segir að ávinningur þeirra af peningaþvætti sé að lágmarki tæplega 88 milljónir króna.

Framkvæmdarstjóri Starfsmanna ehf. og annarra félaga er ákærður fyrir að hafa hjálpað stjórnendum Kraftbindinga með bókhaldssvik og peningaþvætti en talið er í ákærunni að ávinningur af peningaþvætti hans hafi verið á bilinu 152 milljónir til allt að 763 milljónum í þágu hans eða í þágu annarra aðila.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert