Hafi fengið tugi milljóna fyrir níðskrif um Róbert

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs.
Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Róbert Wessman, sem leiðir fjárfestingafélagið Aztiq, hefur sent Fjölmiðlanefnd bréf þar sem hann fer þess á leit við nefndina að hún skoði sérstaklega greiðslur félagsins Skrúðáss til Sólartúns á liðnu ári. Áður hafði Róbert kært umfjöllun Mannlífs, sem er í meirihlutaeigu Sólartúns, til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands,” segir í tilkynningu frá Aztiq.

Segir í tilkynningunni að frá því í janúar árið 2021, eða allt frá því að fyrrum samstarfsfélagi Róberts Wessman, Halldór Kristmannsson, lét af störfum hjá Alvogen, hafi Mannlíf skrifað hátt í 70 greinar um Róbert og félög honum tengd í þeim tilgangi einum að rýra trúverðugleika hans sem og þeirra félaga sem hann stýrir, þar á meðal Aztiq. Þá er tekið fram að Mannlíf var áður í eigu Halldórs Kristmannssonar.

Vöknuðu grunsemdir að Halldór væri að láta gögnin í té

„Í fyrstu vöknuðu grunsemdir um að Halldór væri að láta Mannlífi í té gögn í þessum tilgangi en í byrjun janúar árs 2022 fékk Róbert staðfestar upplýsingar um að Skrúðás sem er í eigu Halldórs væri að greiða eiganda Sólartúns háar fjárhæðir til að halda úti níðskrifum um Róbert. Hefur þeim verið komið áfram til Fjölmiðlanefndar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Segir þá að samkvæmt þessum upplýsingum hafi Sólartún gefið út á liðnu ári reikninga til Skrúðáss fyrir textaskrif og aðstoð við textaskrif og nemi greiðslur Skrúðáss til Sólartúns tugum milljóna króna í fyrra.

Róbert Wessman.
Róbert Wessman. Ljósmynd/Aðsend

Auk þess segir að Róbert hafi tilkynnt ranga skráningu Sólartúns í fyrirtækjaskrá til Skattrannsóknarstjóra en félagið sé skráð sem ferðaþjónustufyrirtæki. Jafnframt hafi verið send ábending til Neytendastofu þar sem Mannlíf (Sólartún) kunni að hafa gerst brotlegt við lög varðandi kostað efni.

Rangar fréttir ekki verið leiðréttar

Segir í tilkynningunni að í samskiptum við ritstjóra Mannlífs undanfarið ár hafi Róbert líkt og samstarfsfólk hans margoft reynt að leiðrétta og koma á framfæri ábendingum til Mannlífs án árangurs. Rangar fréttir hafi ekki verið leiðréttar, ekki hafi verið leitað viðbragða við fréttum og sjaldnast hafi verið haft samband áður en fréttir birtust á vef Mannlífs.

„Það er ljóst að Mannlíf hefur misst allan trúverðugleika sem fjölmiðill með því að taka á móti þessum greiðslum. Ítrekað hefur fjölmiðillinn verið vís um að brjóta á siðareglum Blaðamannafélags Íslands og á fjölmiðlalögum. Að auki hefur háttsemin sett umfjöllun annars fjölmiðils sem Sólartún á í annarlegt ljós. Öll skrif þessara miðla um málefni Róberts Wessman ættu því að detta dauð og ómerk niður,“ segir að lokum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert