Seinkun borgarlínunnar „stór skellur“

Upphaflega var vonast til þess að framkvæmdalok fyrstu lotunnar yrðu …
Upphaflega var vonast til þess að framkvæmdalok fyrstu lotunnar yrðu árið 2025. Teikning/Borgarlínan

„Þetta er náttúrulega stór skellur en miðað við hvernig einstaka liðum í verkáætluninni hefur verið að seinka, þá er þetta ekki eitthvað sem manni bregður við,“ segir Sindri Freyr Ásgeirsson, formaður Samtaka um bíllausan lífstíl, um seinkun verkloka fyrstu lotu borgarlínunnar.

Í uppfærðri áætlun sem kynnt var á þriðjudag kem­ur fram að áætlað sé að legg­ur­inn frá Hamra­borg að miðbæ verði til­bú­inn árið 2026 og legg­ur­inn frá Ártúns­höfða að miðbæn­um verði til­bú­inn ári síðar. Upp­haf­lega var von­ast til þess að fram­kvæmda­lok fyrstu lot­unn­ar yrðu árið 2025.

Sindri bendir á að mjög ítarleg tímalína hafi verið í frumdrögum verkáætlunar borgarlínunnar, sem hefur ekki staðist hingað til.

„Þannig að auðvitað er þetta leiðinlegt,“ bætir hann við.

Vonast til að spýtt verði í lófana

Hann segist þó bíða spenntur eftir borgarlínunni og vonast til þess að hægt sé að spýta aðeins í lófana.

„Eins og það er hægt að tefja borgarlínuna þá hlýtur að vera hægt að flýta henni með auknu fjármagni,“ segir Sindri.

Þá segir hann ýmislegt vera í boði fyrir þá sem vilja lifa bíllausum lífstíl þar til borgarlínan kemur.

„Strætó, hjóla, labba og svo eru nú fínustu deililausnir, bæði hlaupahjólin og deilibílarnir,“ segir Sindri og bætir við:

„Þú átt ekki að hugsa þetta sem af eða á, þú átt bara að reyna að minnka bílnotkunina þína og lifa einhvern veginn almennt umhverfisvænum lífstíl.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert