Ríkisútvarpið braut lög

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpið ohf. hafi brotið gegn lögum um Ríkisútvarpið með kostun á þáttunum Tónaflóð um landið, sem sýndir voru í sjónvarpinu sumrin 2020 og 2021.

Í tilkynningu á vef nefndarinnar sem birt var í gær segir að henni hafi borist ábending um málið í febrúar síðastliðnum, og þar verið vísað til þess að þættirnir gætu ekki talist íburðarmiklir dagskrárliðir í skilningi undantekningarákvæðis 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið.

Meginregla þess ákvæðis felur í sér að Ríkisútvarpinu er óheimilt að afla tekna með kostun dagskrárefnis. Þó megi víkja frá þeirri reglu ef um er að ræða útsendingu íburðarmikilla dagskrárliða, til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningarrétti, eða við útsendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllun um þá.

Við meðferð málsins vísaði Ríkisútvarpið til þess að útsending RÚV og Rásar 2 frá árlegum útitónleikum Menningarnætur í Reykjavík í ágúst teljist vera íburðarmikill dagskrárliður, eins og fram komi í auglýsingareglum RÚV og RÚV Sölu. Ákveðið hafi verið sumarið 2020, meðal annars í ljósi þeirra aðstæðna sem þá ríktu, að fjölga tónleikum og færa þá landsbyggðinni. Hafi tónleikar verið haldnir víðs vegar um landið það sumar undir merkjum Tónaflóðs. Til hafi staðið að ljúka tónleikaröðinni með stórtónleikum frá Arnarhóli á Menningarnótt, en ekki hafi orðið af því vegna sóttvarnaráðstafana.

Þess í stað hafi lokatónleikarnir farið fram í Gamla bíói. Hafi þættirnir verið hugsaðir sem „safn tónleika í einu knippi“, þ.e. að litið hafi verið svo á að einstakir tónleikar væru samofnir útsendingu lokatónleika Menningarnætur og þannig hafi þeir verið taldir flokkast undir að vera íburðarmikill dagskrárliður. Jafnframt kom fram í svörunum að eftir vandlega yfirlegu teldi Ríkisútvarpið, eftir á að hyggja, að kostun Tónaflóðs 2020 og 2021 hafi ekki samrýmst eigin auglýsingareglum og lögum nr. 23/2013.

Að fengnum þessum sjónarmiðum var það niðurstaða nefndarinnar að brotið hefði verið gegn lögunum með kostun þáttanna. Kveðst nefndin telja hæfilegt að stjórnvaldssekt vegna brotsins nemi 1.500.000 kr.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert