Innkalla hvítvín vegna aðskotahlutar

Hægt er að fá vöruna endurgreidda.
Hægt er að fá vöruna endurgreidda. Ljósmynd/Jim Smart

Domaine Franck Millet og Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla hvítvínsflöskur af gerðinni Sancerre Domaine Franck Millet 2021 eftir að aðskotahlutur fannst í vörunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi.

Einungis er kallað eftir flöskum með lotunúmer L4021, en það er að finna á miða aftan á flöskunni.

Þeim sem kunna að hafa keypt vöruna er boðið að skila henni til seljanda til að fá endurgreitt.

Vínið sem um ræðir.
Vínið sem um ræðir. Ljósmynd/ Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert