Taka undir tillögur um bætur vegna ástandsins

Flokkur fólksins leggur til úrræði um heimagreiðslur sem jafngildir niðurgreiðslum …
Flokkur fólksins leggur til úrræði um heimagreiðslur sem jafngildir niðurgreiðslum Reykjavíkurborgar fyrir leikskólapláss fyrstu tvö árin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flokkur fólksins tekur undir tillögu Sjálfstæðisflokksins um að greiða foreldrum bætur sem eiga börn á aldrinum 12 mánaða eða eldri og eru enn á biðlista eftir leikskólaplássi.

„Grípa þarf til fjölþættra úrræða til að ná utan um það neyðarástand sem myndast hefur vegna skorts á leikskólaplássum,“ segir í tilkynningu frá Kolbrúnu Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins.

Flokkur fólksins hafi áður talað fyrir því að veita neyðarstyrki til foreldra sem eru verst settir. Ekki allir foreldrar eigi stuðningsnet í Reykjavík og hafi því engan til að hlaupa undir bagga. Horfa þurfi til þeirra sem séu efnalitlir og fátækir og veita þeim sérstakan stuðning.

Leggja til heimagreiðslur

Flokkur fólksins hefur lagt til úrræði um heimagreiðslur sem jafngildir niðurgreiðslum Reykjavíkurborgar fyrir leikskólapláss fyrstu tvö árin.

„Einhverjir foreldrar hafa tækifæri til að vera heima hjá barni sínu fyrstu misserin og geta vel hugsað sér að þiggja mánaðarlegar greiðslur frekar en að þiggja leikskólapláss.“

Úrræði um heimagreiðslur muni sennilega létta á biðlistum og gætu foreldrar átt þess kost að vera heima hjá barni sínu í allt að tvö ár, að því er segir í tilkynningunni.

Stétt dagforeldra hafi nánast verið útrýmt

Þá gagnrýnir flokkurinn harðlega hvernig farið sé með stétt dagforeldra.

„Henni hefur nánast verið útrýmt því talið var að verkefnið "Brúum bilið" væri handan við hornið. Slík var vanáætlunin hjá síðasta meirihluta. Styrkja þarf dagforeldra með öllum ráðum því nú er sannarlega mikil þörf á þessari stétt sem hefur skipað mikilvægan sess í gæslu barna svo lengi sem elstu menn muna.“

Hinn rótgróni mannekluvandi standi þó upp úr í leikskólamálum, að mati borgarfulltrúa. „Það verður að lagfæra launin, það er grunnur að því að þessi störf eru ekki eftirsóknarverðari.“

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert