Þórunn nýr skrifstofustjóri Landspítala

Þórunn Oddný Steinsdóttir nýr skrifstofustjóri.
Þórunn Oddný Steinsdóttir nýr skrifstofustjóri. Ljósmynd/Landspítalinn

Þórunn Oddný Steinsdóttir lögfræðingur tekur við starfi skrifstofustjóra á Landspítalanum og mun heyra undir forstjóra.

Anna Sigrún Baldursdóttir lætur af störfum á skrifstofu forstjóra spítalans þann 1. október en hún hefur verið ráðin skrif­stofu­stjóri og leiðtogi öldrun­ar­mála hjá vel­ferðarsviði Reykja­vík­ur­borg­ar.

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef spítalans. Þar segir einnig að vinna við skipulagsbreytingar á Landspítala standi yfir og því verði tímabundnar breytingar á verkefnum og starfsemi skrifstofunnar.

Starfaði hjá heilbrigðisráðuneytinu

Þórunn hefur undanfarin átta ár starfað sem sérfræðingur, staðgengill skrifstofustjóra og settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Þá hefur hún einnig síðustu mánuði unnið að stefnumótun og endurskoðun á löggjöf á sviði stjórnar fiskveiða í matvælaráðuneytinu.

Meðal helstu verkefna Þórunnar má nefna verkefni vegna nýrrar stjórnar Landspítala sem og framkvæmdastjórnar en að öðru leyti hefur hún einkum haft með höndum stjórnsýsluleg verkefni skrifstofunnar, nýsköpunarmál, alþjóðlegt samstarf og endurskoðun skjalavistunarmála sem nú stendur yfir. Klínísk verkefni, sem Anna Sigrún sinnti, færast eftir atvikum til framkvæmdastjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert