Stærsta einstaka framkvæmd ríkisins á næsta ári

Frá samningsundirskriftinni í dag. (f.v.) Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri á framkvæmdasviði …
Frá samningsundirskriftinni í dag. (f.v.) Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri á framkvæmdasviði Nýs Landspítala, Aušra Vankevičiūtė Staticus, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Kristín Gestsdóttir verkefnastjóri innkaupaferlis. Ljósmynd/Aðsend

Í dag undirritaði heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, samning Nýs Landspítala ohf. við litháenska útveggjaverktakann Staticus um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna. Þetta er stærsta einstaka framkvæmd sem ríkið ræðst í á næsta ári.

Samningurinn hljóðar upp á 47 milljónir evra, eða um 6,7 milljarða, þar sem uppsetningartíminn er áætlaður um 14 mánuðir og hefst í september 2023. Um er að ræða eitt stærsta fjárfestingaverkefni meðferðarkjarnans, en samningurinn er gerður í kjölfar 15 mánaða samkeppnisútboðsferlis.

Staticus fékk þar hæstu einkunn úr matslíkani og verði. Um er að ræða fullnaðarhönnun, framleiðslu, flutning og uppsetningu útveggja.

„Í dag er stór dagur hjá Nýjum Landspítala þar sem skrifað var undir einn stærsta framkvæmdasamning Nýs Landspítala frá upphafi vegna byggingar á nýjum meðferðarkjarna,” er haft eftir Ásbirni Jónssyni, sviðstjóra framkvæmdasviðs Nýs Landspítala ohf., í tilkynningu vegna samningsins.

Samningurinn við Staticus er um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á …
Samningurinn við Staticus er um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra setur í tilkynningunni þetta verkefni í samhengi við framkvæmdir ríkisins almennt. „Meðferðarkjarninn er gríðarstórt hús. Til að setja það í samhengi þá er framkvæmdin við að reisa útveggina ekki aðeins sú stærsta innan Hringbrautarverkefnisins heldur líka stærsta einstaka framkvæmd sem ríkið ræðst í á árinu 2023,” er haft eftir honum.

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í uppbyggingu Nýs Landspítala og mun gegna lykilhlutverki í megin meðferðarstarfsemi spítalans. Meðferðarkjarninn er hannaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga og annarra bygginga. Þar verður bráðamóttaka, gjörgæsla, skurðstofur, hjarta- og æðaþræðingar og myndgreining ásamt legudeildum og annarri stoðþjónustu svo sem dauðhreinsun og apótek fyrir sjúkrahúsið. Heilbrigðisstarfsemi í meðferðarkjarna mun þannig vera hluti af annarri starfsemi í þeim húsum sem þegar eru til staðar á Hringbrautarlóð.  

Staticus er eitt stærsta fyrirtæki í Evrópu á sviði útveggjaframleiðslu. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 starfsmenn um allan heim og eru með skrifstofur í  Vilnius, Ósló, Stokkhólmi, Vín, Basel og London. Fyrirtækið hefur unnið að sambærilegum verkefnum við sjúkrahús í Osló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert