Kanna sameiningu Bjargráðasjóðs og NTÍ

Bjargráðasjóður mun kanna möguleikann á framkvæmdinni.
Bjargráðasjóður mun kanna möguleikann á framkvæmdinni. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Í skýrslu starfshóps sem var skipaður um tryggingavernd bænda er tillaga um að lagt verði mat á sameiningu Bjargráðasjóðs við Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) eða að sjóðurinn verði deild innan NTÍ með sambærilegri iðgjaldainnheimtu.

Matvælaráðherra hefur beðið stjórn Bjargráðasjóðs um að kanna möguleika á framkvæmd tillögu um sameiningu Bjargráðasjóðs og NTÍ og skili greinargerð að því loknu.

Þetta kemur fram í tilkynningu vegna skýrslunnar, sem hefur verið skilað inn til matvælaráðherra. Hópurinn var skipaður í fyrra og var ætlað að greina stöðu tryggingaverndar bænda vegna óvæntra áfalla í búskap og gera tillögur að úrbótum.

Þrjár tillögur lagðar fram

Í skýrslunni eru lagðar fram þrjár tillögur. Sú fyrsta gerir ráð fyrir nær óbreyttu fyrirkomulagi, en ráðist yrði í að kynna betur fyrir bændum möguleika tryggingaverndar í núverandi mynd. Einnig er gert ráð fyrir að lög um Bjargráðasjóð verði tekin til endurskoðunar til að uppfæra megi úrelt ákvæði. Um leið yrði sett ný reglugerð um starfsemi sjóðsins, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Önnur tillagan setur fram tvo valkosti um efnislegar endurbætur á núverandi fyrirkomulagi til að bæta tryggingavernd bænda. Þar er lagt til að auk endurskoðunar á lögum um Bjargráðasjóð líkt og í fyrstu tillögu, verði gerðar efnisbreytingar til að auka fyrirsjáanleika og draga úr óvissu um bætur. Auk þess er minnst á mögulega sameiningu Bjargráðasjóðs við NTÍ.

Þriðja tillagan gerir ráð fyrir umfangsmeiri uppstokkun á fyrirkomulaginu sem innifelur meðal annars í sér valkvæða uppskerutryggingu byggða á iðgjöldum.

Í skýrslunni er einnig að finna yfirlit um tryggingavernd á Íslandi í dag og fyrirkomulag sambærilega verkefna í nokkrum samanburðarlöndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert