Gular viðvaranir og röskun á samgöngum

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Vestfjörðum, Ströndum og …
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra ig Austurlandi að Glettingi. Kort/Veðurstofa Íslands

Nauðsynlegt er að grípa til viðeigandi ráðstafana á norðanverðu landinu vegna illviðris sem gengur yfir landið á sunnudag.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi.

„Viðbúið er að röskun verði á samgöngum í svona veðri og einnig þarf að ganga frá öllu utandyra og koma búfénaði í skjól. Ferðir á milli landshluta verða erfiðar, og vissara að skipuleggja þær á laugardag eða mánudag,“ segir í færslu Veðurstofunnar á Facebook.

Viðvörunarstig gæti hækkað

Veðurstofan bendir þá á að viðvörunarstig geti mögulega hækkað þegar nær dregur. Til fjalla er spáð hríð meira og minna allan sunnudaginn, fyrst norðvestan til.

Þá er spáð hvassri norðanátt og mikilli úrkomu, á láglendi er spáð slyddu eða rigningu í fyrstu en síðan slyddu og snjókomu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert