Í viðbragðsstöðu á Akureyri

Sjór gekk á land á Oddeyri á Akuryri 25. september …
Sjór gekk á land á Oddeyri á Akuryri 25. september sl. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Óttast er að sambærilegar aðstæður geti myndast á Akureyri á sunnudag og urðu 25. september sl. þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli miklu tjóni. Vegna þessa hafa viðbragðsaðilar frá Norðurorku, Akureyrarbæ og Hafnarsamlagi Norðurlands gripið til ýmissa ráðstafana og aðgerðastjórn Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar hefur verið virkjuð.

Veðurstofa Íslands spáir norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á að ísing setjist á raflínur og valdi truflunum á afhendingu rafmagns. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður verður á meðan viðvörunin er í gildi. Stórstreymt er á sunnudagskvöld og spáð talsverðri ölduhæð. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs verður í gildi fram á mánudagsmorgun.

Hætt við truflunum á rafmagni

Fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ, að á Oddeyri og víðar um bæinn hafi verið gengið úr skugga um að niðurföll og holræsakerfi séu opin og án fyrirstöðu. Einnig hafi verið unnið að viðgerðum á varnargörðum eins og hægt er. Hætt sé við að truflanir verði á rafmagni og því lögð áhersla á að tryggja varaafl í öllum veitum Norðurorku. Reikna megi með að vatnsveðrið valdi miklu álagi á allt fráveitukerfi bæjarins og gangi þessi slæma veðurspá eftir, muni veðrið að öllum líkindum hafa vandræði í för með sér víðar um bæinn en á Oddeyri og Óseyri.

Fram kemur að nægur mannskapur verði til taks og hafi hann yfir að ráða öllum þeim tækjabúnaði sem nauðsynlegur sé við þær aðstæður sem kunna að skapast, vel útbúnum bílum og vinnuvélum. Neyðarstjórn Norðurorku hefur verið virkjuð og starfsmenn Akureyrarbæjar eru í viðbragðsstöðu. Aðgerðarstjórn Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar fundaði í morgun og kemur aftur saman til fundar í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert