Þrír fá 139 þúsund krónur hver

Lottópottur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni og verður því tvöfaldur næsta laugardag. Þrír miðaeigendur skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra tæpar 139 þúsund krónur.

Tveir miðahafar eiga miða í áskrift en sá þriðji keypti miðann á lotto.is.

Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð í jókerútdrætti kvöldsins en einn var með heppnina með sér og fær 2. vinning, 100 þúsund krónur, í sinn hlut. Miðinn var keyptur í appinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert