Verða áfram með viðbúnað í bænum

Lögreglan ætlar að vera áfram með viðbúnað í miðbænum.
Lögreglan ætlar að vera áfram með viðbúnað í miðbænum. mbl.is/Arnþór

Lögreglan mun ekki slaka á viðbúnaði í miðborginni eftir helgina, sem var mun meiri en vant er.

„Þetta verður enn þá í gangi næstu daga og síðan verður staðan endurmetin,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það muni að minnsta kosti verða út næstu helgi.

Stakk í dekk í miðbænum

Grímuklæddur maður sem stakk í dekk í nágrenni við miðbæinn var handtekinn á föstudagskvöld og færður í fangageymslu um miðnætti. Mögulegt er að atvikið tengist öðrum þeirra hópa sem eiga í deilum og tengjast hnífstunguárásinni á Bankastræti Club, að sögn Ásgeirs. „Seinna um nóttina var maður rændur í austurbænum í Reykjavík. Það var fólk sem tengdist öðrum hópnum sem var þarna á fimmtudaginn að vesenast,“ segir Ásgeir.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert