Heiðrún nýr skólameistari á Ísafirði

Heiðrún Tryggvadóttir hefur verið skipuð skólameistari við Menntaskólann á Ísafirði.
Heiðrún Tryggvadóttir hefur verið skipuð skólameistari við Menntaskólann á Ísafirði. Ljósmynd/Mennta- og barnamálaráðuneytið

Heiðrún Tryggvadóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði til fimm ára frá 1. janúar 2023 að telja en hún hefur verið starfandi skólameistari frá byrjun þessa árs.

Heiðrún lauk BA-prófi í íslensku og kennslufræði til kennsluréttinda árið 1997. Þá lauk hún M.Ed.-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Heiðrún stundar nú diplómanám í opinberri stjórnsýslu.

Hún hefur starfað við menntamál frá árinu 1997 þar sem hún hefur kennt við ýmsa grunnskóla, verið verkefnastjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða 2009–2010, kennt og sinnt námsefnisgerð hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða 2009–2013 og starfað við Menntaskólann á Ísafirði frá árinu 2015. Þann tíma hefur hún verið áfangastjóri og leyst af á tímabilum sem aðstoðarskólameistari.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu en rætt verður við nýja skólameistarann í Morgunblaðinu á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert