Hildigunnur fulltrúi Íslands árið 2024

Hildigunnur Birgisdóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2024.
Hildigunnur Birgisdóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2024. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Hildigunnur Birgisdóttir hefur verið valin fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist sem haldinn verður í sextugasta sinn árið 2024 og er talinn einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu, segir í fréttatilkynningu frá Myndlistarmiðstöð.

Segir þar enn fremur að heiðurinn sé mikill fyrir þann íslenska myndlistarmann sem velst til þátttöku á tvíæringnum hverju sinni.

„Þátttaka Íslands á Feneyjatvíæringnum hófst árið 1960 og hafa margir fremstu listamenn þjóðarinnar sýnt þar m.a. Jóhannes Kjarval, Ragnar Kjartansson, Hrafnhildur Arnardóttir, Rúrí og Egill Sæbjörnsson. Myndlistarmiðstöð, áður nefnd Kyn[n]ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar, hefur líkt og undanfarin ár umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins,“ segir þá í tilkynningunni.

Fagurfræði sem fæstir gefa gaum

Hildigunnur hefur á marglaga ferli sínum rannsakað hugmyndir um fegurð, notagildi og samhengi hlutanna. Hvetur hún áhorfandann til að efast um jafnvægið milli skynjunar og raunveruleika.

„Hildigunnur skoðar oft fáfengilega hluti líkt og takka lyklaborðs, plastklemmur og úðabrúsa, og er hver hlutur valinn út frá einfaldleika sínum eða tilvist. Með því að setja fram óskáldlega hluti í nýjum efnum og stærðum undirstrikar Hildigunnur kunnu[g]lega eiginleika þeirra en samtímis því dregur hún notagildi þeirra í efa. Bjögunin undirstrikar skúlptúrískt gildi hinna upprunalegu hluta og fagnar fagurfræði þess sem fæstir gefa gaum,“ segir því næst í fréttatilkynningunni.

Verg þjóðarframleiðsla, eða Gross Domestic Product, heitir þetta verk Hildigunnar …
Verg þjóðarframleiðsla, eða Gross Domestic Product, heitir þetta verk Hildigunnar frá því í fyrra. Ljósmynd/Ivan Erofeev

Hildigunnur er fædd árið 1980 og býr og starfar í Reykjavík. Verk hennar voru til sýnis í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári, safninu GES-2, sem V-A-C Foundation í Moskvu rekur, og H2H í Aþenu.Verk hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Nýlistasafnsins og European Patent Office. Hildigunnur útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003.

Valferlið fyrir Feneyjatvíæringinn árið 2024 var með þeim hætti að allir aðilar fulltrúaráðs Myndlistarmiðstöðvar fengu boð um að senda allt að þrjár tillögur að listamanni, sýningarstjóra eða sýningarhugmynd og barst fjöldi hugmynda. Fagráð Myndlistarmiðstöðvar, auk tveggja gesta, fór yfir tillögur og valdi listamann úr þeim hópi.

Fagráðið í valferlinu skipuðu Starkaður Sigurðarson, fyrir hönd SÍM, Auður Jörundsdóttir, forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar, og Harpa Þórsdóttir fyrir hönd listasafna. Gestir fagráðs voru Una Björg Magnúsdóttir og Sigurður Guðjónsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert