Bílvelta nærri Vífilsstaðavatni

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíll valt á veginum milli Vífilsstaðavatns og Kórsins í Kópavogi síðdegis í dag. Einn var í bílnum en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. 

Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. 

Hann grunar að bíllinn hafi oltið vegna hálku, en frost hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert