Tvær til þrjár tunnur verða við sérbýli

Dæmi um hvernig tvær tvískiptar tunnur gætu raðast við sérbýli …
Dæmi um hvernig tvær tvískiptar tunnur gætu raðast við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd/Sorpa

Tvær til þrjár tunnur verða að jafnaði við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu þegar nýtt sorpflokkunarkerfi verður innleitt á vormánuðum næsta árs. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við íbúðarhús.

Þá fá öll heimili gefins sérstaka körfu og pappírspoka undir matarleifar en íbúar þurfa ekki að aðhafast neitt í tengslum við breytingarnar annað en að tileinka sér nýja flokkunarsiði. Þetta kemur fram í tilkynningu Sorpu.

Tunnum komið fyrir eftir þörfum

Um áramót taka gildi ný lög um hringrásarhagkerfi en þau kveða á um að íbúum verði skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaðan úrgang.  

Stefnt er að því að innleiðing breytinganna hefjist á vormánuðum 2023 en tunnum fyrir þessa fjóra flokka verður komið fyrir við íbúðarhús eftir þörfum.

Nú þegar flokka langflest heimili plast og pappír frá blönduðum heimilisúrgangi. Í nýju flokkunarkerfi er skylda að flokka matarleifar frá öðrum úrgangi. 

Samræmda flokkunarkerfið dragi úr urðun

Með því að flokka matarleifar frá blönduðum heimilisúrgangi er hægt að endurvinna þær í metangas og moltu, segir í tilkynningu Sorpu.

Hið samræmda flokkunarkerfi sveitarfélaganna mun því draga stórlega úr urðun og síðar brennslu á úrgangi og styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins. 

Samhliða þessum breytingum fá grenndargámar nýtt hlutverk við að taka á móti málmi, gleri, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum, sem samkvæmt lögum ber að flokka sérstaklega og safna í nágrenni við íbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert