Meðallaun í olíuakstri um 900 þúsund

Meðalheildarlaun bílstjóra í olíudreifingu voru 893.000 krónur árið 2022.
Meðalheildarlaun bílstjóra í olíudreifingu voru 893.000 krónur árið 2022. mbl.is/Kristinn Magnússon

Meðalheildarlaun bílstjóra í olíudreifingu voru 893.000 krónur árið 2022. Til samanburðar voru 70% fullvinnandi á almennum vinnumarkaði árið 2021 með lægri mánaðarlaun en 858.000 krónur. Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um boðuð verkföll olíubílstjóra í Eflingu.

„Því er um að ræða hálaunahóp og Sólveig Anna hefur tekið að sér að vera í brjóstvörn þessa hóps fyrir meiri hækkunum en annað launafólk fær í landinu og lama íslenskt samfélag með verkföllum í leiðinni,“ segir Halldór í samtali við Morgunblaðið.

„Í viðtali við trúnaðarmann olíubílstjóra í fjölmiðlum kom fram að þeir væru bara að fara fram á 670 króna hækkun á tímann. Það jafngildir um 30% hækkun launa til viðbótar við 10% hækkun 2022. Bara dagvinnulaun bílstjóranna eiga að hækka um 120 þúsund krónur á mánuði, sem er nærri tvöfalt meiri hækkun en Efling krefst fyrir þernur á hótelum. Og nú greiða olíubílstjórar atkvæði um verkfall til að fylgja eftir viðbótarkröfum sem aldrei hafa verið kynntar SA, einungis kynntar í fjölmiðlum.“

Halldór segir að Efling hafi í kjaradeilum síðustu ára nær einvörðungu sagst leggja áherslu á hækkun launa í láglaunastörfum. „Það er í sjálfu sér gott og endurspeglar áherslur lífskjarasamningsins og taxtahækkanir í nýjum samningum SA. En Efling siglir undir fölsku flaggi í sinni kjarabaráttu. Það fer ekki saman hljóð og mynd. Nú hafa verið boðuð verkföll hjá félagsmönnum Eflingar í vörubílaakstri og olíudreifingu.“

Komi til langdregins verkfalls bílstjóra blasir við að tjón samfélagsins verður mikið.

„Það verkfall hefur áhrif á daglegt líf allra í landinu. Efling ætlar sér þannig að valda öllu samfélaginu gríðarlegum skaða til þess að berjast fyrir kjörum karla með há laun í íslensku samhengi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert