Fjöldi umferðaróhappa og bílar fastir

Erfið færð er á höfuðborgarsvæðinu.
Erfið færð er á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Arnþór

„Það er erfið færð. Þæfingur víða í úthverfum borgarinnar og við erum búin að fá þó nokkur umferðaróhöpp,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Í úthverfum vorum við byrjaðir að fá útköll áðan um að bílar væru að festa sig í húsagötum. Snjórinn er léttur og fýkur í skafla. Það er skafrenningur.“

Dimm él gera fólki erfitt fyrir auk þess sem umferð er hæg á höfuðborgarsvæðinu vegna þessa. Fjögurra bíla árekstur varð á Sæbrautinni í dag.

Aka varlega eða panta ferð til Tenerife

„Þetta snýst um að fara varlega, það er númer eitt, tvö og þrjú, að haga akstri eftir aðstæðum. Það eru þessi dimmu él sem verða, þá hægist á öllu. Síðan er frost úti og undir öllu snjófarginu er hálka. Og menn verða að taka mið af því. Eða bara að panta sér ferð til Tenerife,“ segir Árni í gríni.

Færð er sömuleiðis erfið á landsbyggðinni og hefur Hellisheiðinni og Þrengslum verið lokað vegna þessa og fólk hvatt til að aka varlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert