Veginum um Hellisheiði og Þrengsli hefur verið lokað vegna veðurs, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.
Akstursskilyrði eru þar afar slæm eins og mbl.is greindi frá í dag.
Slæmt skyggni, akstursskilyrði og dimm él eru á Reykjanesbrautinni sem og víðar á Suður- og Suðvesturlandi og biður Vegagerðin vegfarendur því að aka með gát.
Hellisheiðinni var lokað í gær en hún var opnuð aftur í morgun.