Skaut á þá sem gagnrýndu jóladagatalið

Þórdís Gísladóttir á Eddunni í kvöld.
Þórdís Gísladóttir á Eddunni í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Gísladóttir, höfundur jóladagatals Rúv 2022, skaut föstum skotum á Útlendingastofnun og þá stjórnmálamenn sem gagnrýndu þættina í opinberri umræðu, þegar hún tók á móti verðlaunum í kvöld. 

Randalín og Mundi: Dagar í Desember, jóladagatalið 2022, sem byggt var á barnabókum Þórdísar, hlaut Edduverðlaun í flokki barna- og unglingaefnis. 

Það fór fyrir brjóstið á mörgum hvernig Útlendingastofnun, og starfsmenn hennar, voru settir fram í þáttunum. Þótti þessi framsetning fela í sér pólitískan áróður sem ætti ekki heima í barnaefni Ríkisútvarpsins. 

Rataði málefnið meðal annars inn í ræður þingmanna á Alþingi, og Útlendingastofnun fjallaði í kjölfarið um jóladagatalið á vefsíðu sinni, og birti upplýsingar undir yfirskriftinni Tölum um fólk á flótta. 

„Gamlir karlar á Alþingi“

Í ræðu sinni á verðlaunaathöfninni í kvöld sagði Þórdís að það væri alltaf markmiðið, við gerð barnaefnis, að ná til breiðs aldurshóps. Viðtökurnar fóru þó fram úr væntingum hennar. 

Hafði hún orð á því að það hafi tekist svo vel að jafnvel „gömlum körlum á Alþingi tókst að setja þetta á dagskrá á þinginu og opinber stofnun sá ástæðu til að útskýra efnið.“

„Þetta sýnir að efni fyrir börn skiptir gríðarlega miklu máli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert