Fjórir sakfelldir og einn í tveggja ára fangelsi

Fimm karl­menn voru ákærðir í málinu en einn þeirra var …
Fimm karl­menn voru ákærðir í málinu en einn þeirra var sýknaður. Ljósmynd/Þór

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag fjóra unga karlmenn fyrir þátt þeirra í árásum sem framdar voru í Borgarholtsskóla í janúar 2021. Fimm karl­menn voru ákærðir í málinu en einn þeirra var sýknaður.

Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður eins hinna ákærðu, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Strokufanginn hlaut tveggja ára fangelsi

Eins og áður sagði voru fjórir sakfelldir í málinu. Þrír hlutu sex mánaða skilorðsbundinn dóm en sá fjórði, Gabríel Douane, hlaut tveggja ára fangelsi. Hann var ákærður fyrir þátt sinn í árásinni auk tveggja annarra líkamsárása í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Fjallað var um mál hans eft­ir að hann strauk úr gæslu­v­arðhaldi í apríl í fyrra.

Gabríel Douane Boama strauk úr gæsluvarðhaldi í apríl í fyrra.
Gabríel Douane Boama strauk úr gæsluvarðhaldi í apríl í fyrra. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert