Búið að opna fjöldahjálparmiðstöðvar

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Rauði krossinn

Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, segir í samtali við mbl.is að öllum líkindum sé búið að hafa samband við alla sem eru á svæðinu þar sem snjóflóð féll í Neskaupstað í nótt. 

Búið er að opna fjöldahjálparmiðstöð í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Þá er búið að virkja sam­hæf­ing­armiðstöð í Skóg­ar­hlíð og segir Hjördís að verið sé að samhæfa aðgerðir og ná utan um stöðuna. 

Að sögn Hjördísar féll síðara snjóflóðið klukkan 7 í morgun á fjölbýlishús og er verið að rýma svæðið þar í kring. 

Í frétt Austurfréttar segir að snjóflóðið féll á fjölbýlishús við götuna Starmýri. Bílar lentu á blokkinni og eru skemmdir á henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert