Gaskútarnir sem sprungu voru þrír

Frá brunanum við Eskiás.
Frá brunanum við Eskiás. Ljósmynd/Aðsend

Gaskútarnir sem sprungu á þaki nýbyggingar við Eskiás í Garðabæ fyrir viku síðan voru þrír talsins.

Einn var 50 kílóa þungur en hinir tveir 35 kílóa, að sögn Helga Gunnarssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Áður kom fram að tveir gaskútar hefðu sprungið á þakinu.

Glóð kviknaði í tjörupappa og stóðu kútarnir við brettið með pappanum. Óverulegar skemmdir urðu, enda var steypt plata undir, segir Helgi, sem hefur ekki upplýsingar um hve þungur gaskúturinn var sem lenti á bíl nálægt húsinu. Hann segir tryggingarnar hafa bílamálið á sinni könnu.

Leifar eftir sprenginguna fundust víða.
Leifar eftir sprenginguna fundust víða. mbl.is/Kristinn Magnússon

Málið upplýst

Glóð kviknaði í tjörupappa og stóðu kútarnir við bretti með pappanum. Óverulegar skemmdir urðu, enda var steypt plata undir, segir Helgi, sem hefur ekki upplýsingar um hve þungur gaskúturinn var sem lenti á bíl nálægt húsinu. 

Lögreglan á eftir að ræða við undirverktaka í tengslum við óhappið en málið telst engu að síður upplýst.

Sinubruninn í nágrenni Straumsvíkur var mikill.
Sinubruninn í nágrenni Straumsvíkur var mikill. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sinubruninn upplýstur

Sinubruninn í síðustu viku í nágrenni Straumsvíkur telst einnig upplýstur, að sögn Helga. Lögreglan hefur ekki tekið skýrslu af neinum vegna málsins en það stendur til.

Eldur kviknaði í fjárhúsi og hlöðu, auk þess sem bíll skemmdist. Um tryggingamál er þar að ræða, segir Helgi og nefnir að bíllinn hafi verið númerslaus.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert