Bíll björgunarsveitar sat fastur í á

Bíll björgunarsveitarinnar sat fastur við hlið bílsins sem þegar var …
Bíll björgunarsveitarinnar sat fastur við hlið bílsins sem þegar var fastur í ánni. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitarbíll festist í Leirvogsá í Mosfellsbæ í dag, en bíllinn var þar til að aðstoða jeppa sem sat einnig fastur í ánni.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom þá til bjargar og dró bílana tvo upp úr.

Björgunarsveitum Kjalarness og Mosfellsbæjar barst hjálparbeiðni um miðjan dag í dag frá fólki sem hafði fest jeppa í Leirvogsá. Sat bíllinn fastur í ánni og færðist undan straumþunga.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að mikið vatn sé í ánni eftir mikla úrkomu undanfarna daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert