Beint: Baráttufundur BSRB í Bæjarbíó

Nú stendur yfir þriðja vika af verkfallsaðgerðum BSRB. Í þess­ari …
Nú stendur yfir þriðja vika af verkfallsaðgerðum BSRB. Í þess­ari viku hafa um 900 manns lagt niður störf í 11 sveit­ar­fé­lög­um. Ljósmynd/Aðsend

BSRB heldur baráttufund í Bæjarbíói Hafnarfirði í dag vegna kjaradeilu bandalagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn hefst 17:30 og lýkur um 18:30.

Verkfallsaðgerðir af hálfu BSRB verða að öllu óbreyttu hertar í næstu viku. Þær beinast nú helst að starf­semi leik­skóla. Að auki hef­ur verið gripið til verk­fallsaðgerða í tveim­ur höfn­um, í Vest­manna­eyj­um og Þor­láks­höfn. Í þess­ari viku hafa um 900 manns lagt niður störf í 11 sveit­ar­fé­lög­um.

Aníta Ósk Georgsdóttir og Magdalena Anna Reimus sem eru báðar í verkfalli flytja hugvekjur á fundinum auk Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanns BSRB.

Hér má fylgjast með fundinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert