Pussy Riot stígur á svið á LungA

Sýningin verður sambland af tónleikum, gjörningalist og pólitískum mótmælum.
Sýningin verður sambland af tónleikum, gjörningalist og pólitískum mótmælum. Ljósmynd/Aðsend

Gjörningahópurinn Pussy Riot mun stíga á svið á LungA í sumar þegar listahátíðin verður haldin í tuttugasta og fjórða skiptið dagana 9.-16. júlí.

Hópurinn hefur síðastliðin tvö ár ferðast víða um Evrópu en eftir 70 daga reisu um Bandaríkin og Evrópu mun hópurinn heimsækja Seyðisfjörð og flytja þar sýninguna Riot Days.

Í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar segir að sýningin sé sambland af tónleikum, gjörningalist og pólitískum mótmælum.

Í síðasta mánuði veitti Alþingi þeim Mariiu Al­ek­hinu og Lucy Shtein, liðsmönnum Pus­sy Riot,  ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt, en þær voru í hópi 18 sem veittur var ríkisborgararéttur í það skiptið.

„Riot Days-sýningin var að hluta til þróuð og æfð á sviði Þjóðleikhússins í tilefni yfirlitssýningar hópsins í Kling & Bang galleríi síðastliðinn vetur. Þá hafði forsprakki hópsins Masha Alyokhina naumlega flúið Rússland en hún og Lucy Shtein hlutu íslenskan ríkisborgararétt nú á dögunum,“ segir í tilkynningunni.

Meðal annarra listamanna sem koma fram á hátíðinni eru Countess Malaise, Dream Wife, GRÓA, Kælan mikla, Nuha Ruby Ra og Zakia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert