Útlit er fyrir að á fimmta hundrað ungmenna sem sótt hafa um störf hjá Reykjavíkurborg í sumar fái enga vinnu. Þá eru um 320 stúdentar á biðlista hjá Atvinnumiðstöð stúdenta. Einnig hefur mikil aukning orðið á umsóknum um verkefnastyrki hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Borgarráð samþykkti í gær 80 milljóna aukaframlag vegna ástandsins en sú fjárveiting dugir ekki til þess að leysa vandann. Heildarfjárveiting Reykjavíkur vegna sumarvinnu námsfólks verður um 750 milljónir króna í ár en í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var einungis gert ráð fyrir 520 milljónum til þessa málaflokks. Umsóknum um sumarvinnu hjá borginni og fyrirtækjum borgarinnar hefur fjölgað verulega á síðustu tveimur árum. Svo virðist sem kólnun efnahagslífsins á þessu tímabili hafi haft veruleg áhrif á spurn eftir sumarstarfsfólki og fyrirtæki treysti sér ekki enn til þess að gera ráð fyrir þeirri uppsveiflu sem talin sé framundan.
Árið 1997 var gerð breyting á lögræðislögum og sjálfræðisaldurinn hækkaður úr sextán í átján ár. Þetta hefur haft það í för með sér að fyrirtæki eiga erfiðara með að ráða skólafólk til starfa enda er erfiðara að ráða ólögráða einstaklinga í vinnu en þá sem öðlast hafa fullt lagalegt sjálfræði. Vandamálið nær þó ekki aðeins til fólks á aldrinum sextán til átján ára heldur er markaðurinn einnig mjög þröngur hjá háskólastúdentum. "Ég held að ástandið hafi aldrei verið jafnslæmt og í ár. Fólk er að reyna að bjarga sér en eftirspurnin eftir sumarstarfsfólki hefur minnkað mikið og við höfum mörg dæmi þess að fólk sem hefur unnið sumarstörf hjá sömu fyrirtækjum í mörg ár fái ekki vinnu í sumar," segir Davíð Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.