Lögreglan áréttar bann við skemmtunum um jólin

Lögreglan í Reykjavík hefur fyrirvara á sér og sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem vakin er athygli á því að allt skemmtanahald er bannað á stöðum sem almenningur hefur aðgang að frá klukkan 18 á aðfangadagskvöldi jóla til klukkan 6 að morgni annan dags jóla.

Að sögn lögreglunnar er heimilt að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn. Áfengisveitingar eru þó háðar tímamörkum í leyfum borgar- eða bæjarstjórna. Beri að loka þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir verði að vera farnir af viðkomandi stað innan klukkustundar.

Þá er heimilt að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veitingar áfengis megi samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um.

Þá segist lögreglan ekki gera athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert