Festist við frystikistuna

Það má kannski segja að 13 ára gömul rússnesk stúlka hafi farið úr öskunni í eldinn þegar hún freistaði þess að kæla á sér tunguna eftir að hafa brennt sig á heitu tei.

Stúlkan opnaði frystikistu heima hjá sér og lagði tunguna að hliðinni á frystinum. En tungan festist jafnskjótt. Stúlkan var ein heima og varð að bíða talsverðan tíma eftir að foreldrar hennar kæmu. Þeir reyndu án árangurs að losa dóttur sína og hringdu síðan á sjúkrabíl. Bráðaliðum tókst að losa stúlkuna en sáu að hana hafði kalið á tungunni og fluttu stúlkuna því á sjúkrahús.

Læknar sögðu síðar að þeim hefði tekist að bjarga tungunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson