Í nótt fór póstflutningabifreið Íslandspósts út af á brúnni við Núpsvötn. Í bifreiðinni var póstur frá Austfjörðum, bæði bréf og bögglar, og kastaðist hluti póstsins úr bifreiðinni. Með aðstoð björgunarsveita er nú unnið að því að safna póstinum saman, meðal annars af bökkum Núpsvatna, og verður hann sendur til Póstmiðstöðvarinnar í Reykjavík síðar í dag.
Í tilkynningu frá Íslandspósti segir að ákveðið hafi verið að skrá og flokka allan póst sem í bifreiðinni var. Hluta sendinganna þarf einnig að þurrka og verður síðan reynt að meta ástand þeirra. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu ljúki í nótt. Upplýsingar um einstaka sendingar verða gefnar hjá þjónustuveri Íslandspósts á morgun og á næstu dögum í síma 580 1200.
Þá segir að starfsfólk Íslandspósts muni gera allt sem í valdi þess stendur til þess að bæta viðskiptavinum sínum á Austfjörðum fyrir þau óþægindi og hugsanlegt tjón sem þeir verða fyrir vegna þessa óhapps. Jafnframt fagnar starfsfólk því að meiðsli bílstjórans reyndust minni en fram kom í fyrstu fréttum af slysinu.