Forsætisráðherra tekur við viðurkenningu í Bandaríkjunum

Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra.

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, tekur á laugardag við viðurkenningu bandarísku félagasamtakanna, Academy of Achievement. Markmið samtakanna er meðal annars að leiða saman annarsvegar háskólanema frá fjölmörgum löndum og hins vegar stjórnmálamenn, kaupsýslumenn, listamenn, vísindamenn, íþróttafólk og fleiri á árlegum fundi, sem nú verður haldinn í Chicago.

Að þessu sinni veita samtökin rúmlega 30 stjórnmálamönnum, listamönnum, vísindamönnum og fleiri viðurkenningu. Meðal þeirra má nefna Abdullah Jórdaníukonung, Michael R. Bloomberg, borgarstjóra New York, Recep Tayyip Edrogan, forsætisráðherra Tyrklands, rithöfundana John Updike og Norman Mailer, Sally Ride, fyrstu bandaríska kvengeimfarann, leikkonuna Julie Andrews, söngkonuna Emmylou Harris, óperusöngvarann José Carreras og tónlistarmanninn B.B. King.

Meðan á fundinum stendur mun forsætisráðherra taka þátt í hringborðsumræðu um orkumál.

Mánudaginn 14. júní flytur Davíð erindi í boði American Enterprise Institute í Washington um íslensk efnahagsmál og um alþjóðamál og íslenska utanríkisstefnu.

Vefsíða Academy of Achievement

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert