Stolnum jeppa ekið á ljósastaur

Nýr Toyota Land Cruiser jeppi fannst mannlaus á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar í nótt. Hafði honum verið ekið á ljósastaur og var talsvert skemmdur. Komið hefur í ljós að bílnum var stolið frá Hellu síðastliðna nótt, en lögreglan á Hvolsvelli vinnur nú að rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert